|
Við búum í Gödding skógi sem liggur
á milli Vejle og Billund. Í húsinu, sem við
keyptum árið 1999, var áður verslun fyrir
sveitina, en við byrjuðum fljótlega að breyta
veslunarhúsnæðinu í gistiheimili.
Í boði eru fjögur tveggja manna herbergi og
eitt fjölskylduherbergi með svefnplássi fyrir fjóra.
Hérna er einnig ágætis eldhús með
öllum helstu áhöldum og borðstofa með sjónvarpi,
videói og spilum fyrir börnin. Þá er í
húsinu þráðlaus internet tenging. Tvö
klósett (annað með sturtu) eru sameiginleg.
Húsið er umkringt 300 ha. Skógarsvæði.
Þar mega allir ferðast um og þar er að finna
leikvöll fyrir krakkana.
Í 4 km. fjarlægð frá okkur er góð
fiskitjörn ( Put and Take ) og þar hafa margir af gestunum
okkar veitt vænan silung. Við erum auðvitað með
veiðistangir til útláns og veiði dagsins er
svo hægt að grilla á kolagrillunum okkar í
garðinum.
Ýmisleg fleira er í boði í næsta
nágrenni. Ef ykkur langar út að borða getum
við mælt með Møllemarkshus sem
er í göngufæri og Randbøldal Kro
sem liggur ca. 4 km. frá okkur. Þarna er hægt
að fá góðan danskan mat á góðu
verði.
Þá eru það verslunarmöguleikarnir.
Vejle er í aðeins 18 km fjarlægð og þar
er göngugata með mörgum spennandi verslunum og í
Kolding Storcenter í Kolding, sem er í rúml.
30 km. fjarlægð, eru allar hugsanlegar verslanir.
Héðan má segja að stutt sé í
allar áttir fyrir dagstúra. Árósar eru
í 70 km fjarlægð og þangað er um það
bil klukkutíma akstur. Þar er hægt að fara
í Tivoli Friheden, Den Gamle By eða Mosegård Museum,
þar sem Gravballemanden er. Svo erum við auðvitað
rétt hjá Legolandi og Ljónagarðinum.
Þá er það Himmelbjerget við Silkeborg
. Það er ekki hægt að koma til Danmerkur nema
fara í fjallgöngu. Og strandferðir,
bíltúr á Fjón eða ferð til Þýskalands.
Þetta eru bara nokkrir af möguleikunum fyrir eins dags
túra.
Við aðstoðum ykkur eftir bestu getu að finna
þá staði sem ykkur langar til að heimsækja.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Nokkrar gagnlegar krækjur:
Kolding Storcenter ( www.koldingstorcenter.dk
)
Legoland ... (http://www.lego.com/legoland/billund//default.asp?locale=1030
)
Tivoli Friheden ... (http://www.friheden.dk/
)
Den gamle by ( http://www.dengamleby.dk/
)
Givskud ZOO ( http://www.givskudzoo.dk/showpage.asp?ID=1
)
|